Skilmálar
Áskriftin
Áskriftin veitir aðgang að verkefnaheftum sem þú sækir og prentar heima.
- Grunnáskrift kostar 499 kr. á mánuði og veitir aðgang að öllum heftum sem hafa komið út síðustu fjórar vikur.
- Safnáskrift kostar 699 kr. á mánuði og veitir aðgang að öllu efni sem hefur komið út.
Greitt er með greiðslukorti í gegnum greiðsluþjónustuna Repeat, fyrir einn mánuð í senn. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í hverjum mánuði þar til henni er sagt upp.
Uppsögn
Þú getur sagt upp hvenær sem er á Mínum síðum eða með því að senda póst á hallo@verkefnakistan.is. Áskriftin gildir þá út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir og er ekki endurnýjuð eftir það.
Notkun efnisins
Efnið er ætlað heimilinu. Þú mátt prenta eins mörg eintök og þú vilt fyrir börnin á heimilinu. Óheimilt er að selja efnið, dreifa skránum eða birta þær annars staðar.
Viltu nota heftin í leikskóla eða skóla? Hafðu samband og við finnum lausn.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
Ef eitthvað er ekki eins og það á að vera skaltu senda póst á hallo@verkefnakistan.is og við leysum málið.
Rekstraraðili
Verkefnakistan er rekin af Heimó ehf., kt. 700626-2880, Langirimi 21, 112 Reykjavík. Netfang: hallo@verkefnakistan.is.
