Verkefnakistan

Persónuvernd

Heimó ehf., kt. 700626-2880, Langirimi 21, 112 Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á þessum vef.

Hvaða upplýsingar geymum við?

- Netfangið þitt, svo þú getir skráð þig inn og fengið vikupóst. - Hvaða áskrift þú ert með og hve lengi hún gildir. - Hvaða skrár þú sækir og hvenær. Þær upplýsingar notum við til að sjá hvaða efni nýtist best og til að verjast misnotkun.

Við geymum engar kortaupplýsingar. Greiðslur fara fram hjá greiðsluveitunni Repeat, sem vinnur kortaupplýsingar samkvæmt eigin skilmálum.

Hverjir vinna með upplýsingarnar?

Við notum þjónustuaðila sem geyma gögn fyrir okkur: Supabase (gagnagrunnur og skrár), Vercel (hýsing vefsins) og Resend (tölvupóstur). Við seljum aldrei upplýsingar og deilum þeim ekki í markaðsskyni.

Vafrakökur

Vefurinn notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur, svo þú þurfir ekki að skrá þig inn í hvert skipti. Engar auglýsinga- eða mælingakökur eru notaðar.

Hve lengi?

Við geymum upplýsingarnar á meðan þú ert með aðgang. Ef þú vilt að við eyðum þeim skaltu senda póst á hallo@verkefnakistan.is og við gerum það innan 30 daga. Upplýsingar um greiðslur gæti þurft að geyma lengur vegna laga um bókhald.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og að fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu póst á hallo@verkefnakistan.is. Þú getur líka leitað til Persónuverndar á personuvernd.is.